- Elkem
- About Elkem
- Our worldwide presence
- Iceland
- Elkem Iceland
- Fréttir
- Elkem Ísland hlýtur styrk til að kanna varanlega geymslu á koltvísýrings í jörðu.
Elkem Ísland hlýtur styrk til að kanna varanlega geymslu á koltvísýring í jörðu.
Elkem Ísland hefur hlotið 198,7 milljóna króna styrk frá stjórnvöldum til verkefnisins Decarbonization Grundatangi. Styrkurinn kemur úr úr Loftlags- og orkusjóð.

Decarbonization at Grundatangi
Verkefnið verður unnið af Elkem Ísland í samstarfi við Carbfix og felur í sér greiningu á losun frá iðnaðarstarfsemi á Grundatang sem og mat á möguleikum til að fanga og geyma koltvísýring (CO₂) varanlega neðanjarðar.
Unnið verður að losunarmælingum og líkanagerð, ásamt jarðfræðirannsóknum til að meta hvort berglög á svæðinu henti langtímageymslu á CO₂.

Hluti af loftlags- og iðnarstefnu Íslands
Fjármögnunin er hluti af stærri úthlutun úr Loftlags- og orkusjóð Íslands með það markmið að hraða þróun tæknilausna sem geta dregið úr losun gróðurhúsalofttegunda frá iðnaði sem fellur undir viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimild (ETS).
Um styrks úthlutunina sagði Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis, orku- og loftlagsráðherra:
„Þróun stóriðju hefur verið lykilþáttur í uppbyggingu sterks og samkeppnishæfs raforkukerfis á Íslandi, þar sem verksmiðjur eru reknar á endurnýjanlegri orku. Við erum að stíga inn í nýjan kafla í sögu stóriðju, þar sem ekki er lengur nægilegt að framleiðslan sé einungis byggð á grænni orku.
Við erum að leggja aukna áherslu á kolefnisföngun og geymslu, sem og skilvirkari nýtingu á auðlindum. Þetta er mikilvægt loftlagsmál, en jafnframt grundvallaatriði fyrir samkeppnishæfni iðnaðar í dag.“
